Lilypie 1st Birthday Ticker

mánudagur, 11. febrúar 2008

4. okt. 2007 Afmæli mömmu

Í dag varð mamma Hrönn 41. árs. Í staðinn fyrir að halda veislu þá ákvað mamma að bjóða fjölskyldunni á gífurlega flotta sýningu kínversks fjöllistaflokks sem var hér á Íslandi vegna kínverskrar hátíðar í Kópavogi.
Þannig mættu amma Fríður, amma Dúdú, Kristófer, Bíbí frænka, Astrid frænka, Elma Rún, Ari, mamma og pabbi (Sigrún Lind var á staðnum).
Þetta voru ótrúlegir listamenn - margir ungir krakkar sem voru svakalega liðug.
Mömmu fannst þetta ótrúlega skemmtilegur afmælisdagur ég held að allir hafi hugsað til Stubbalínu.
Á leiðinni út hittum við Helgu Lan og fjölskyldu hennar sem á hús í Hrísey eins og við.

Engin ummæli:

Þátttakendur