Frábær helgi.
Nú erum við komin með mikið efni til að gera flottar "skrapp" síður.
Guðný systir þín og amma Fríður komu á sunnudaginn til að taka þátt í að gera myndadóta bók handa þér.
Mamma var búin að prenta út fullt af myndum af kínverskum dúkkum og öðru dóti sem við ákváðum að setja saman í eitt albúm.
Pabbi skar pappírinn, keyrði Guðnýju á æfingu og sá um matinn.
Amma og Guðný gerðu eina opnu en Kristófer var afkastamestur og gerði tvær og hálfa opnu. Þau skrifuðu á síðuna bæði á kínversku og íslensku orðin systir, bróðir og amma.
Ég var óstöðvandi og hélt áfram til 4 í nótt - þá dauðþreytt en alsæl með árangurinn - 3 opnur.
Þetta er svo sannarlega skemmtilegt og gaman að gera svona saman. Það voru sagðir brandarar og borðaður góður matur inná milli.
Stefnum á að halda áfram að gera fleiri síður.
mamma
Gestabók Kínastelpunnar
mánudagur, 11. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli