Héðan í frá ætlum við pabbi að vera dugleg að blogga fyrir Stubbalínu.
Samkvæmt fyrsta plani hefðum við átt að vera úti í Kína að ná í hana núna en biðin hefur heldur betur lengst. Í dag fórum við til Guðrúnar hjá ættleiðingarfélaginu sem sagði að kannski gætum við farið út í apríl :-) Hver veit - kannski verður það á afmælinu hans pabba ?
Við erum í hóp 17 en við fréttum á "Scrap" námskeiðinu í gær að hópur 15 ætti von á upplýsingum og myndum í næstu viku. Þau stefna þá á að fara út um jólin. Nú ætla ég að prenta þetta út og sýna pabba - svo getur hann líka farið að skrifa.
Við vonum að þetta verði dýrmætar minningar fyrir þig elsku Stubbalína okkar. Mamma
Gestabók Kínastelpunnar
mánudagur, 11. febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli