En mamman fer aldrei tómhent út - nú fékk hún t.d. fínt garðsett fyrir Hörpu Hua Zi. Þetta er stóll og borð sem er meira að segja í nákvæmlega sama lit og húsið okkar ! Hvort fyrir sig kostaði einungis 50 kr. sem sagt góð kaup í dag. Nú er bara að vona að veðrið fari að skána og veturinn hleypi vorinu að til að gleðja okkur.
Við eigum sko eftir að vera flott í sólbaði og sólskinsskapi á pallinum með Hörpu í góða veðrinu í sumar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli