Lilypie 1st Birthday Ticker
Sýnir færslur með efnisorðinu Veislur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Veislur. Sýna allar færslur

mánudagur, 25. febrúar 2008

Fataskápur Hörpu Hua Zi endurskoðaður

Yndislegur sunnudagur ! Fjölskyldan í cósý fíl heima - fengum gesti í brunch Ester og syni hennar Friðrik og Tómas. Þau komu auðvitað til að sjá myndirnar af Hörpu Hua Zi, þeim fannst hún gullfalleg.......kemur mömmunni ekki á óvart !!



Tinna mömmusystir kíkti rétt við á leiðinni útá flugvöll. Þau eru nú búin að vera í 1 viku á Íslandi. Hún sagðist vita um fínan matarstól fyrir Hörpu Hua Zi og svo ætlaði hún að biðja tengdamömmu sína að leita að litlu fötunum hans Brimars. Kannski við getum notað eitthvað af þeim ?

Svo fór pabbinn í kínanuddið í Kópavoginum en á meðan fórum við Kiki á msn og ræddum við Söru og co í fyrsta sinn í gegnum tölvuna.

Eftir það var mamman alveg rosalega dugleg að fara í gegnum öll fötin sem hefur verið safnað, lánað, saumað eða keypt á stelpuna okkar. Þarsem það var aldrei öruggt hversu gömul hún yrði þegar hún kæmi þá hefur safnast saman stærðir frá 80 til 3.-4. ára.


Þetta er semsagt mest allt mikið stærra en hún hefur not fyrir strax. Vá heljarinnar vinna að kíkja á allar stærðir og flokka niður.







En mikið er gott að vera búin að þessu ! Þannig að nú er rúmt um þau föt sem hafa verið keypt í stærð 74, 80.

Það var ekkert annað hægt en hafa þetta á hreinu, mamman sá annars fyrir sér caos þegar pabbinn eða Kiki færu að finna til föt á Hörpu Hua Zi. En núna verður þetta ekkert vandamál allt á sínum stað og í réttum stærðum fyrir hennar aldur. Mömmunni líður mikið betur - já ég veit ég er algjör skipulagsfíkill - svoleiðis er það bara !!!

fimmtudagur, 21. febrúar 2008

Nafnaveislan

Skírnarvottarnir, frænkur mínar Astrid og Auður, ömmur mínar báðar og systkini mín Guðný og Kristófer voru viðstödd "afhjúpun" nýja nafnsins. Pabbi hafði prentað nýja nafnið mitt á 5 blöð, einn staf, H A R P A, á hvert og hinu megin, H U A Z I, og sneri það nafn upp þegar gestirnir komu. Síðan sneru hver og einn einu blaði við og nýja nafnið tók að birtast. Farið var eftir aldri og Kristófer sneri fremsta blaðinu við, H _ _ _ _. Guðný sneri við 4ða blaðinu, H _ _ P _, og þá sögðust einhverjir vera búnir að ná því hvert nafnið væri. Síðan sneri Astrid frænka 3ja blaðinu við, H _ R P _ og A-in tvö komu svo frá Auði frænku og ömmu Fríði. Allir voru mjög ánægðir með nafnið mitt



Kristófer búin að snúa við Háinu ........ fremsta stafnum






Astrid snéri við Ainu (hennar staf) í miðjunni og spennan magnast !




Allt nafnið komið HARPA sem bætist framan við Hua Zi

Allir mjög ánægðir og segja að það hæfi vel þessari stúlku.


Þetta var yndisleg kvöldstund með fólki sem er okkur dýrmætt og sem á eftir að hafa mikið með Hörpu Hua Zi að gera í framtíðinni.





Amma Fríður kom með þessa fallegu peysu í tilefni nýja nafnsins.

Þetta er peysa sem Hanna eða Matta í Hrísey hafa líklega prjónað og verið að selja í Perlunni (handverkshúsinu). Amman keypti hana afþví að henni fannst hún svo sæt - en grunaði alls ekki að Harpa Hua Zi gæti passað í hana. Haldiði að maður verði fín ?





Undirbúningur mömmunar hófst þegar hún keypti pappír og skraut í "mont" albúm sem allir viðstaddir áttu að fá í nafnaveislunni.





Eftir vinnu var byrjað að föndra með diggri hjálp Kristófers svo bættist Guðný í hópinn og þannig gátum við klárað 6 "mont" albúm fyrir kvöldið.



Svo eftir að nafnið var ljóst og búið að fá sér piparmyntu og bananaís auk hind, blá og jarðaberja þá fóru stóru systkinin aftur niður í vinnuherbergi mömmunar og héldu áfram að skreyta albúmin sín. Það var heilmikil stemning hjá þeim og það á víst að sýna krökkunum í skólanum á morgun. Spennó hvað verður sagt !




Mamman var líka búin að fara inná ungi.is og kanna hversu algeng nöfn allra viðstaddra væri á Íslandi.


Hér eru þær upplýsingar efst það algengasta:


Guðný Skírnarnafn 1252 Millinafn 389


Auður 1048 126


Þórunn 1030 207


Tómas 734 147


HARPA 665 236 (verða nú bráðum 666)


Kristófer 483 75


Hrönn 366 749


Fríður 36 19


Astrid 26 8


Svo var annað sem mamman fann út en það er til stjörnumerki á himnum sem heitir Harpa. Svona lítur það út:





Elsku Harpa Hua Zi við getum ekki beðið eftir að fá þig heim í fjölskyldufaðminn.






Þátttakendur