Pabbinn var búin að segja mömmunni mörgum sinnum að þau yrðu að horfa á stórkostlegan þátt í sjónvarpinu um kínverskan píanó snilling Lang Lang. Þar gætu þau séð svo margt frá Kína sem væri eflaust athyglisvert.
Rétt áður en þátturinn byrjaði var mamman ekki komin í sjónvarpsstellingarnar og pabbinn var hræddur um að hún myndi missa af þættinum: "ætlarðu ekki að sjá þáttinn" ?
Stuttu eftir að hann hófst þá sá ég mun kunnuglegri sýn, myndin segir meira en þúsund orð !
Þetta er ekki í fyrsta sinn og eflaust ekki í það síðasta sem pabbinn heldur ekki vöku yfir heilum þætti eða mynd.
Ætli það sé ekki helst Arsenal fótboltaleikur sem myndi geta haldið honum vakandi ?
Nýju gleraugun taka sig vel út þó að það sé ekki beint verið að nota þau á þessari stundu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli