Gestabók Kínastelpunnar
miðvikudagur, 19. mars 2008
Komin með bílstól
Mamman og pabbinn fóru í Baby Sam búðina í dag til að kíkja á bílstól. Bella skólasystir mömmunar úr Digranes og Víghólaskóla,vinnur hjá TM og sagði okkur að þeir væru með samning við þessa búð.
Stóllinn sem okkur leist best á var "gamalt" módel og þarafleiðandi með 40% afslátt. Hann verður nú aldeilis flottur í nýja bílnum mömmunar - alveg í stíl grár og svartur eins og Pöndu bíllinn er að innan.
Pöntuðum líka strax á leigu 2 stóla þegar Betty og Ricky koma í vor frá Ítalíu með stelpurnar sínar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli