Mamman fékk upplýsingar á ferðafundinum að gott væri að hafa þetta með sér ef það yrði hægðartregða hjá litlu dömunni.
Svo eftir að hafa séð þetta líka á tékklistanum í dag var ekki eftir neinu að bíða - þetta verður greinilega "must" í farangrinum.
Mamman er nú farin að huga að hverju á að pakka niður og hvað þarf að ná í áður en við höldum af stað í stóra ferðalagið okkar til Kína til að ná í dóttur okkar Hörpu Hua Zi.
það eru margir svona listar á netinu en þennan hérna fyrir neðan fengum við frá ferðafélaga úr hópnum okkar.
Er einhver sem vill gefa okkur góð ráð og segja okkur frá einhverju fleiru sem gott væri að hafa með eða undirbúa áður en við förum ?
Tékk listi f. Kínaferð.
Sjúkrakassi : ( mat hvers og eins hvað er nauðsynlegt )
Svefntöflur
Hitastílar f. börn
Imodium ( við niðurgangi hjá fullorðnum )
Saltupplausn, Semper ( við niðurgangi hjá börnum )
Hitamælir
Bómull
Sótthreinsir
Moskítovörn
Sólvörn
Paratabs/parasetamol
Barnamagnyl ( f. fullorðna v. flugsins)
Plástur
Mikilvægt:
Bólusetning
Vegabréfsáritun
Passamyndir á mann ( 2 stk )
Ath. góða ( ekki of nýja ) skó
Skila pappírum v. fæðingarorlofs
Ljósrita vegabréf
Fá ljósrit af pappírum hjá Ísl. Ættleiðingu
Mælt með að taka með:
Mappa með öllum pappírum
Léttur bakpoki / taska f. bleyjur, pela o.þ.h. (mothers bag )
Ferðaveski framan á maga
Dagbók
Myndavél/videóupptökuvél
Svartur penna
Lítið flísteppi
Barnaföt – ca 10 alklæðnað
Bleiur ( 1 pk )
Smekkir
Taubleyjur, 2- 3
Leikfang sem heyrist í
Blautklúta ekki með lykt
Plastað frotte eða einnota undirlag
Cheerious
Handþvottaefni
Krukkumat – sveskjumauk
Pelar ( t,d einn lítill og einn stór ) nokkrar túttur sem passa
Snuð
Mjólkurduft ( t.d. SMA 9
Plastskál með loki ( f. Cherioos og mat )
Plastskeið til að mata barnið með
Plastbursti til þess að þvo pelann
Stálhitabrúsi
Magapoki
Vert að muna:
Muna Pin númer m.t.t. hraðbanka
Hafa nafn barnsins tilbúið
Takmarka loftkælingu í herbergjum
Ekki baða fyrsta sólahringinn, hafa gömlu fötin í rúminu – ( barnið snúi frá manni fyrsta daginn)
Kveikja á sjónvarpi þegar við komum inn á hótel
Engin ummæli:
Skrifa ummæli