Guðný Tómasdóttir
Veislugestir
Sesselja, Addi, Jón Fannar (fermist á næsta ári) og Steina systir Tomma
Á veisluborðinu okkar voru spjöld sem stóð á:
Hamingjan felst í smámunum hversdagsins, hlýju brosi og svolítilli greiðasemi.
Snúðu andlitinu að sólinni og þú sérð ekki skuggann.
Svo hafði Guðný útbúið litlar grænar stjörnur þar sem hægt var að skrifa heilræði til hennar og setja í kassa sem hún hafði skreytt.
Virkilega sniðugt !
Mér fannst þessir litir hæfa henni svo vel, svo kemur í ljós að túrkísblái liturinn er notaður í skreytingarnar í veislunni hennar. Hún sagði mér einnig í blessuninni að ég væri klædd alveg í stíl við litina í skreytingunum - það var skemmtileg tilviljun.
Var að skarta jólagjöfinni minni (sjal og eyrnalokkar) frá Þórunni, Jón Ragnari og strákunum í Köben.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli