Við Kiki erum búin að vera veik heima í dag, en hann hefur sem betur fer flotta tölvu sem við gáfum honum í fermingargjöf.
Það er sko búið að dunda sér heilmikið á henni, skrifa sögu, teikna Joe Boxer buxurnar sínar, skoða þætti og spila reikningsleik.
Myndirnar verða síðan settar uppí Power Point til að geta sýnt þær í fermingarveislunni eftir rúma viku - nú fer að hefjast countdown !
Engin ummæli:
Skrifa ummæli