Gestabók Kínastelpunnar
laugardagur, 8. mars 2008
föstudagur, 7. mars 2008
Tin Tin
Í hinni mjög svo sérstöku verslunarferð keypti mamman DVD disk um Tinna eða Tin Tin. Á sínum yngri árum átti mamman nokkrar Tinna bækur - uppáhaldið var Skurðgoðið í Kongó !
En Tinna bókin Blái Lótusinn var aldrei til á heimilinu. Nú finnst okkur allt sem tengjist Kína eða er kínverskt óhemju áhugavert/mikilvægt og þessvegna var algjört "must" að eignast þennan disk. Það verður gaman að horfa á þessa mynd.

Séð og heyrt
Mamman fór í þessa venjubundnu innkaupaferð í dag og var ákkúrat búin að setja rauð og gul epli í poka auk nokkurra pera, þegar pabbinn hringdi og spurði hvar hún væri. Nú úti að versla !!!
HA ! Þá varð pabbinn hissa - hann var líka búinn að versla ! Mamman þuldi upp spurningar lista um - mundurðu/gleymdirðu þessu .... ? En nei pabbinn var búin að kaupa allt. Mamman ákvað samt að fara í gegnum búðina og taka allavegana ávextina - var hálf hallærislegt að skila til baka og labba tómhent út. Þannig að mamman klárarði hefðbundna hringinn en með allt öðru hugarfari - hmmmm - hvernig væri að prufa svona eða svona ? Fyndið hvað gerist á svona stundu - í staðinn fyrir mjólk, brauð, Cheerios og þetta "basicly" þá verslaði mamman nýja tegund af súkkulaði kexi og 2 klósett bursta ( á sitthvort klóið). Svo af því að það tók mikið skemri tíma að versla þá gafst nægur tími í að skoða blöðin. Þannig rataði skakki turninn og nýjasta Séð og heyrt í körfuna. Í báðum blöðunum eru greinar sem tengjast Kína, í skakka turninum er fjallað um að Rómverjar hafi verið í Kína (eitthvað sem Kiki hefur áhuga á) og svo eru 2 greinar í Séð og heyrt - önnur greinin er um 4 ára Kínasnót sem var 20.000 gestur á Gosa sýningunni og hin greinin er um 30 ára afmæli ÍÆ.

Efnisorð:
ÍÆ - Íslensk ættleiðing,
Kína greinar
fimmtudagur, 6. mars 2008
Unglingurinn á árshátíð
Núna í kvöld er árshátíð unglinganna í Vogaskóla. Þetta er sko alveg alvöru - það átti að mæta 18.30 í sparifötum og svo er sest til borðs og borðað margréttað
Kristófer var voða fínn í svörtu jakkafötunum sínum og í nýrri blárri skyrtu sem amma hans gaf honum í gær. Mamman lagaði hárið til og setti smá gel auk þess að spreyja ilm á drenginn. Það þurfti ekki meira ! Ætli það verði ekki eitthvað öðruvísu þegar Harpa Hua Zi fer að fara á böll ?
Skólastjóranum þótti ástæða til að biðja fólk um að leyfa börnunum ekki að koma í limmósínu !!! Hún taldi það vera nægur tími til þess í framtíðinni. Ég er nú alveg sammála henni með þetta en samt bauðst ég til að keyra hann í limmósínunni minni uppí skóla eða sækja hann, en það var pent afþakkað - hann vildi heldur labba !
Já þetta eru skilaboð um að það sé ekkert sérstaklega kúl að láta mömmu sína keyra sig. Bíð nú spennt eftir að hann komi heim til að segja hvernig var á fyrstu alvöru árshátíðinni.
Hér eru nokkrar myndir en fleiri eru á Flickr.com :
http://www.flickr.com/photos/hrannsa/1 hundrað kall
Mamman kom á leiðinni heim við í Góða hirðinum eins og svo oft áður. Það er heldur lítið af dóti núna þau segja það vera vegna þess að veðrið hafi verið leiðinlegt og fólk kannski latt að taka til í geymslum. Bjuggust við að nú færi að koma meira þegar fermingar undirbúningur fer á fullt.
En mamman fer aldrei tómhent út - nú fékk hún t.d. fínt garðsett fyrir Hörpu Hua Zi. Þetta er stóll og borð sem er meira að segja í nákvæmlega sama lit og húsið okkar ! Hvort fyrir sig kostaði einungis 50 kr. sem sagt góð kaup í dag. Nú er bara að vona að veðrið fari að skána og veturinn hleypi vorinu að til að gleðja okkur.
Við eigum sko eftir að vera flott í sólbaði og sólskinsskapi á pallinum með Hörpu í góða veðrinu í sumar.

Fegurð
Harpa Hua Zi er fallegasta stelpan í öllum heiminum - að okkar mati. En afþví að við getum enn ekki leyft ykkur að njóta hennar með okkur þá fann mamman upplýsingar um alheimsdrottningarnar 2005 og 2007.
Er það ekki doldið merkilegt að það skuli ákkúrat vera íslensk og kínversk fegurðardrottning á nákvæmlega sama tíma og við erum búin að vera bíða eftir Hörpu Hua Zi. Meira að segja báðar verið krýndar í Kína !

Hér er bloggið hennar Unnar Birnu meðan hún var alheims fegurðar drottning
http://unnurbirna.blog.is/blog/unnurbirna/

Sendiherra Kína og Ólympíuleikana ungrú Zhang Zilin Miss World 2007 bloggarVideó af krýningu Miss World 2005
Videó - vegna ÓL

Mæli með því að þið gefið ykkur smá tíma og kíkjið á þetta videó:
http://www.sonnyradio.com/Chinaolympics.html
Ef þetta er einungis undirbúningurinn fyrir Ólympíuleikana - hvernig verða þeir þá í ágúst ?

Ferða ferða .......
Í dag fengum við nánari tímasetningu á ferðafundinn næstkomandi sunnudag. Byrjum að funda kl.10 og þá mæta mamman og pabbinn í sínu fínasta pússi því þau verða að vera komin í blessunina hennar Guðnýjar kl. 11. Þegar henni lýkur verður aftur brunað niður í ÍÆ og hoppað inní dagskrána þangað til nauðsynlegt verður að fara aftur til að mæta í veisluna á réttum tíma kl.14.
Jeppp ! Þetta verður Jójó dagurinn okkar - alltaf fram og til baka !
En í dag fengum við fréttir að ferðin okkar til Kína hefði verið bókuð í lok mars þó að það hafi verið áhætta sem búið var að vara okkur við. Jáhá það var alger eining og samstaða meðal allra í hópnum með þetta - ekkert verið að taka "walk on the safe side" og bíða þar til eftir Trade fair sýninguna. Úff það yrði skelfilegt ! Bíða þangað til í maí - hugsa sér það er jafnlangt þangað til og frá jólum til dagsins í dag !
Nú er bara að vona að kínverjarnir gefi okkur ferðaleyfin sem fyrst !!!
Ef allt gengur upp þá myndi þetta vera svona:
Flogið til Kaupmannahafnar laugardaginn 29. mars kl 8 og áfram til Beijing um kvöldið. Þannig værum við komin til Beijing 30. mars sem er sunnudagur. Þar yrði prógramm í nokkra daga en svo yrði flogið til Guangzhou á miðvikudegi 02.04. Nú þarf að vera 7 virka daga í Guandong vegna pappíra og þessháttar formleg heita. Því verður dvöl okkar í Guangzhou til 12.04.
Þaðan verður flogið aftur til Beijing þar sem dvalið verður í 3 daga eða þartil kemur að heimferð til Íslands 15.04.
Já þetta verður líka svona jójó ferð - alltaf fram og til baka. En guð minn góður hvað ég hlakka til. Allt varðandi þessa ferð er frábært og útkoman verður stórkostleg.

Nóg af bloggi
Er komið nóg af bloggi ??? Bjarti finnst það allavegana stundum og reynir þá að hafa vit fyrir okkur. Í gær var hann búin að liggja lengi fyrir framan tölvuna og mamman varð að hafa hendurnar ofaná eða undir honum. En svo allt í einu stóð hann upp og labbaði á lyklaborðinu í smátíma þangað til hann ákvað hvað yrði besta stellinginn til að leggja sig í - beint á tölvuna !!!
Þó að ég færi að skellihlæja og kalla hátt á pabbann til að segja honum að koma og sjá hvað kötturinn hefði gert, lét Bjartur allt þetta ekki á sig fá og lét sem ekkert væri. Það var ekki fyrr en pabbinn var búin að taka mynd og kalla á hann að honum fannst ástæða að kíkja upp. Ég bara spyr, eru allir kettir svona ? Er þetta alveg normal ?
En nei nei auðvitað látum við köttinn ekki stjórna því hvað við skrifum mikið ! Þó að það nú væri. Við höldum ótrauð áfram - höfum svo gaman af því sjálf. Það gefur okkur heilmikið að lesa kommmentin og í gestabókinni. Nú svo er svo svakalega spennandi að sjá hversu margir droppa við og kíkja á síðuna okkar - nú erum við að nálgast 2000 innlit og það einingis eftir stuttan tíma í þessum bloggheimi ! Reyndar er ákkúrat núna 1966 innlit - sem er fæðingar ár mömmunar.

miðvikudagur, 5. mars 2008
Nostalgía
Mamman fór á kaffihús í M&M í dag með nemendum sínum. Á leiðinni út sá hún eina af hennar uppáhalds bókum frá því hún var lítil. Nýja húsið hans Barbapabba ! Allir af þessari kynslóð hljóta að muna eftir þessum bókum ! Ekki spillti nú fyrir að bókin væri fjólublá alveg eins og uppáhalds fígúran hún barbafín. Já já fjólublái liturinn hefur alltaf verið stór hluti í lífi mömmunar eins og margir hafa líklega tekið eftir. Þessi litur mun fylgja henni um alla tíð - enda er hann líka sérstaklega "Kreatífur" litur. Eins gott að allir séu sáttir við það !!! Einu sinni - já bara 1X sagði pabbinn: "er ekki komið nóg af þessu FJÓLUBLÁA drasli ???????? jóv vóv ! En hann hefur ekki sagt þetta aftur og kemur líklega ekki til með það á næstunni.
En aftur að bókinni - uppáhaldssíðan var þar sem sést þverskurður af húsinu þeirra og hvert einasta barbapabba barn átti sítt spes herbergi. Nákvæmlega svona hús vildi mamman búa í þegar hún yrði stór. Eftir að hafa skoðað bókin vel áðan var nú margt í húsinu þeirra likt okkar í Snekkjó þ.e. mörg mism. rými og holur. Formið er þó allt annað - væri helst hægt að komast nálagt barbapabba húsinu með því að búa í kúluhúsi ! Hver veit hver veit - kannski í framtíðinni ?
Ég vona að Harpa Hua Zi kunni líka að meta barbapabba. Hún mun allavegana ekki þurfa að biðja oft um að mamman lesi barbapabba fyrir sig.

þriðjudagur, 4. mars 2008
Amma Dúdú kaupir höfuðföt
Mamman fór með ömmu Dúdú í fræga Outlettið í dag meðan beðið var eftir að amma Fríður yrði búin í kínanuddinu.
Mamman vissa að amma Dúdú væri hrifinn af allskonar höfuðfötum og þar sem hún hafði séð svo mörg smart síðast frá Kangol þá vissi hún að hún hefði gaman af því að skoða þau.
Flest öll fóru henni vel en hún ákvað að taka 1 hatt og 3 der/skyggni. En á meðan amma Dúdú var að máta fór mamman að gramsa í körfu á gólfinu og fann þar lítil höfuðföt - alveg passleg á Hörpu Hua Zi. Verðið var brandari - 150 kr. stk. Jiiii hvað er gaman að versla á þessum kjörum - nauðsynlegt fyrir vogir sem aldrei geta ákveðið sig !!! Þarna þarf bara að taka eina ákvörðun - kaupa allar týpur !!!! Svo sá mamman fallegt hvítt hördress, bol og buxur. Síðan þegar mamman ætlaði að fara borga sagði amman að hún vildi gefa Hörpu þetta allt, frábært - TAKK ! Mömmunni finnst það nú einstaklega skemmtilegt að ákkúrat amma Dúdú gefi öll höfuðfötin - því það er sko alveg hennar deild.
Nú er bara að vona að Harpa verði ekki eins og beibíið á Rossó í gær - tók alltaf af sér húfuna og henti í gólfið !
Eftir að hafa keyrt ömmurnar heim til sín og mamman komin á Snekkjó tók við myndataka. Það verður allt að vera skráð og myndað - fyrir bloggið. Við viljum að Harpa Hua Zi viti það seinna hvað við höfum verið að gera fyrir hana og hugsa til hennar.
Myndatakan var heilmikill viðburður - Kristófer hjálpaði mömmunni og var stílisti. Pandan hennar Hörpu var módel fyrir höfuðfötin og stóð sig svona líka vel. Sjáið bara hvað árangurinn er frábær !

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)