Lilypie 1st Birthday Ticker

þriðjudagur, 4. mars 2008

Rossopomodoro - dagur að hætti Marcello

Nú er liðið ár síðan að Marcello pabbi hans Kristófer lét lífið í bílslysi í Öxnadal. Til að minnast hans bað Kristófer um að farið yrði út að borða á Rossopomodoro - það er einmitt sá staður sem Marcello vann sem lengst á meðan hann bjó hér á Íslandi. Í okkar huga er hann enn tengdur þessum stað. Kristófer var búin að ræða við sr. Jón Helga að það ætti einmitt að gera eitthvað í anda pabba hans á þessum degi.
Amma Dúdú, afi Trausti og Tommi voru komin aðeins á undan því að rétt áður en við fórum útúr húsi hringdi Betty systir Marcello frá Ítalíu til að segja okkur hvernig þau hefðu minnst hans þar.
Þau fóru öll í kirkjugarðinn í gær og í dag var hans minnst í messu í Mílanó þar sem fjölskyldan kom saman.

Sem betur fer var Enes vinur Marcello að baka pizzurnar í kvöld - hann býr sko til bestu pizzur í HEIMINUM !!!! Hann ætlar að reyna að koma og búa til pizzur fyrir ferminguna hans Kiki annan í páskum.
Við mælum sko með þessum pizzum - mmmmmnnn,, hvað þetta var góður matur.
Það er sko alveg öruggt að Marcello hefði verið ánægður - eða er ánægður - við trúum að hann sé með okkur.
Kristófer fannst svolítið rólegt - líklega vegna þess að það er mánudagskvöld en einnig vegna þess að það verður aldrei sama stemning og þegar pabbi hans var þar Chef, þá var alltaf líf og fjör. Þessvegna teljum við líka að nauðsynlegt sé að vera ekki mjög döpur - Marcello hefði ekki viljað það.

Astrid frænka var yndisleg að hringja - Kristófer þótti virkilega vænt um það.
Svo sendu Bíbí og Halldór fallegt sms en þau höfðu alltaf verið með 4. mars í huga.
Sara yngri systir Marcello sendi mér og Kristófer falleg sms - svoleiðis er dýrmætt.
Þórunn stæsrsta systirinn sendi kveðju með sms frá Danmörku.

6. mars fengum við kveðjur frá Sophiu í Ástralíu sem þekkti Marcello vel og Deboru á Ítalíu þær eru báðar góðar vinkonur mömmu frá því í Marangoni skólanum í Mílanó. Mjög hjartnæm og hlý bréf frá þeim, einnig sendi sr. Sólveig Lára yndislegan tölvupóst og sagðist hafa hugsað mikið til okkar.








Gamalt kínverskt bréfsefni

Mamman kíkti við í Góða hirðinum í dag. Sá í fyrstu ekki neitt nema lítið vatt stungið satín teppi sem hún ætlaði að taka í dúkkurúmið.





Var dáldið hissa á að finna ekki neitt annað merkilegt og var farin að hugsa um að auðvitað hlyti að koma að því að nauðsynlegt væri að fara einhvern tíman þaðan tómhent !!! EN á leiðinni út greip hún í lítið ásjálegan plastpoka sem var límdur saman og hann fékk að koma með heim enda kostaði hann bara 500 kr.




Það var því rosaspennandi að opna pokann og skoða innihaldið, sem kom aldeilis skemmtilega á óvart. Þetta voru hin diversu bréfsefni frá Kína - stórkostlega falleg. Vei ! Þetta var mamman ánægð með. Kannski vill Harpa Hua Zi nota þau þegar hún þarf að senda fermingar eða brúðkaupskortin sín ???






































Gamalt baby stensla mótíf á 150 kr. var einnig tekið með - verður líklega notað í skrapp eða bókargerð.

mánudagur, 3. mars 2008

Lega Íslands mikilvæg fyrir Kínverja

Kínverjar hafa sýnt Íslandi sérstakan undanfarið, ekki bara vegna ættleiðinga, heldur vegna breytinga af völdum hnattrænnar hlýnunar. Þannig mun myndast siglingaleið í N-Íshafi sem framtíðarsiglingarleið á milli N-Evrópu og Asíu. Margt bendir til að eftir 7 til 8 ár geti kaupskip siglt allt árið um kring um Norðuríshaf. Ísland mun þá gegna lykilhlutverki í vöruflutningum á þessu svæði, og nú þegar hafa m.a. stórfyrirtæki á borð við Eimskip opnað risafrystigeymslu í Kína. Hagsmunir Kínverja eru þarna miklir, og bent er á að ekkert erlent sendiráð á Íslandi sé stærra en það kínverska og að Kínverjar hafi verið Íslendingum innan handar í baráttunni fyrir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Svo skemmtilega vill til að afi Hörpu Hua Zi, Dr. Trausti Valsson skipulagsfræðingur og háskólaprófessor, er sá Íslendingur sem einna mest hefur velt fyrir sér áhrifum hnattrænnar hlýnunar á norðurslóðum og gaf út bók um efnið á síðasta ári og er nú með heimildarmynd í smíðum, í samvinnu við Ara Kristinsson kvikmyndargerðarmann.

Í grein um bók Trausta segir m.a.:
Trausti skrifaði bókina How the world will change with global warming (Hvernig heimurinn mun breytast að völdum hlýnunar jarðar) þar sem hann setur fram kenningar sínar um málið og varpar ljósi á eina mögulega framtíð jarðarbúa.

Trausti segir, að í bókinni leitist hann við að draga upp mynd af heiminum í heild sinni og þeim loftslagslegu áhrifum sem telja má líklegt að hækkandi hitastig á heimsvísu hafi í för með sér. Þær löngu siglingaleiðir sem stærri flutningaskip þurfi nú að fara til að ferja varning á milli heimsálfa munu styttast til mikilla muna.

Síðan er þetta haft eftir Trausta:
„Risaskip dagsins í dag komast ekki í gegnum Panamaskurðinn og þurfa því að sigla óralanga leið í kringum heilu heimsálfurnar til að komast á áfangastað. Það er ljóst að ef hafís heldur áfram að bráðna á þeim hraða sem við sjáum í dag mun ekki líða á löngu þar til Norðvesturhliðið svokallaða opnast og hægt verður að sigla beint yfir Norðurskautshafið. Þetta mun gjörbreyta öllum siglingasamgöngum og flutningaleiðum, enda verður um u.þ.b. fimm til níu þúsund kílómetra sparnað að ræða. Við getum, sem sagt, búist við því að skipaumferð fram hjá Íslandsströndum stóraukist og verði orðin töluverð innan tveggja áratuga; en því fylgja bæði tækifæri og hættur. Íslenska Landhelgisgæslan þarf að fjárfesta í mjög kostnaðarsömum tækjabúnaði til að geta aðstoðað skipverja í hættu stadda,í skipum af þeirri stærðargráðu sem búast má við að fari að sigla um landhelgi okkar. Svo geta þessi skip haft alls kyns hættulegan varning innanborðs. Tækifærin felast hins vegar í umskipun og almennri þjónustu við þessi mörgu og gríðarstóru skip.“

sunnudagur, 2. mars 2008

Ársminning Marcello



Marcello pabbi Kristófers lést í bílslysi nú um rétt fyrir ári síðan, þ.e. 3.mars 2007. Í raun væri það dagurinn í dag ef ekki hefði verið hlaupársdagur í fyrradag.
Við byrjuðum á að fara í æskulýðsmessu í Langholtskirkju með ömmu Fríði, ömmu Dúdú og afa Trausta. Eftir fallega messu kveiktum við á kertum við altarið til minningar um Marcello - Kristófer raðaði þeim fallega uppí kross.
Á leiðinni heim komum við í bakarí og allir fóru svo heim á Snekkjó í flottan brunch. Þar á eftir fór afi heim en Kiki bað hann að koma með sér fyrst í Nexus til að kaupa fleiri Warhammer - fígúrur.
Við hin fórum yfir boðslistann fyrir ferminguna hans Kristófers á meðan og þegar Kiki kom heim var drifið í að gera boðskortin sem enn vantaði og setja þau í umslög. Það eru ca. 100 manns á boðslistanum - vonandi geta sem flestir mætt - vitum þó að kannski stendur illa á hjá fólki sem hefur planað eitthvað um páskana.
Kristófer var svo spenntur að byrja að mála fígúrurnar að þeir Tommi fóru í Húsasmiðjuna til að kaupa svart sprey sem grunn á fígúrurnar. Þeim var stillt uppá kassa útí garði og þar var spreyjað.
Við vorum búin að ákveða að fara í Fossvogskirkjugarðinn til að kveikja á kerti fyrir Marcello - það varð að dýrmætri stund á fallegum stað. Eftir það var ömmu Dúdú skutlað heim og síðan farið með ömmu Fríði á bílaverkstæðið hans Sigga - þar á Korandóinn aldeilis eftir að fá flotta yfirhalningu.
Við erum þakklát fyrir þennan dag og líður vel með að minnast Marcello á þennan hátt - hann hefur eflaust líka verið ánægður.
Kristófer sagði síðan frá því að hann og sr. Jón Helgi hefðuð verið búnir að ræða um að það væri sniðugt að fara út að borða á Rossopomodoro, þar sem Marcello vann sem lengst. Þangað förum við á morgun - þann 3. mars.





70 % afsláttur

Mömmunni fannst skrítið að koma inn í krakkabúð í Kringlunni og rekast á einu stelpu fötin sem voru eftir á síðustu dögum útsölunnar ákkúrat í stærð 74-80 !!!!
Voru þau ekki bara að bíða eftir að mamman myndi koma og kaupa þau handa Hörpu Hua Zi ?
Auðvitað var ekki hægt að sleppa svona tilboði - kommmmmon ! Þessar svölu doppóttu leggings voru t.d. á tæpar 300 kr !
Mikið verður gaman að sjá Hörpu í öllum þessum fínu fötum.








Smekkur

Mamman varð hissa þegar hún rakst á smekk eins og voru vinsælir fyrir þó nokkru síðan. Harður plastsmekkur með rennu - man þegar ég var að passa krakka og maturinn rann ofaní smekkinn og þannig var hægt að mata uppúr rennunni.
Í nostalgíu kasti festi ég kaup á svona smekk en hugsaði þó að kannski yrði hann ekkert notaður - líklega er ekki þægilegt að vera með svona plastsmekk um hálsinn ?
Það kemur náttúrulega ekki til greina að Harpa Hua Zi verði látin vera með eitthvað sem henni finnst óþægilegt. En þetta á eftir að koma í ljós - kannski verður þetta alveg bráðsnjallt ?

Flottar samfellur og skriðsokkabuxur

Mamman ráfaði inní Rúmfatalagerinn um daginn og fann þá frábærar samfellur og mjög praktískar sokkabuxur - þær eru nefnilega með gúmmítökkum undir fætinum og á hæð við hnéð. Svona sokkabuxur voru sko ekki til þegar Kristófer var lítill. Hefði verið alveg tilvalið fyrir hann þá hefði honum kannski tekist að skríða framávið en ekki alltaf aftur á bak eins og hann gerði.





Íslenskir fánar

Mamman sá í Rúmfatalagernum íslenska fánann á stöng sem henni fannst tilvalið að kaupa til að fara með til Kína. Kannski til að gefa "gædunum" eða barnaheimilinu ?

Meira af Bjarti

Bjartur er óendanleg uppspretta af sögum og myndefni. Mamman þreytist seint á því að blogga um þennan magnaða kött sem allir eru svo hrifnir af.
Í dag þegar sólin var komin í stofugluggann var Bjartur komin þangað undir eins til að sleikja sólina - þetta eru greinilega ljóna genin !!!
Hann var samt svo forvitin að vita hvað við vorum að gera í sófanum að hann stakk loppunni á milli gardínanna og var á gægjum. Eflaust hefur hann haldið að hann gæti bara séð okkur en við ekki hann - þetta var eins og heilmikið laumuspil hjá honum.








laugardagur, 1. mars 2008

Bjartur vill fá athygli

Fyrir nokkru var mamman að flokka of stór barnaföt sem koma ekki til með að passa strax á Hörpu Hua Zi og ganga frá þeim í geymslupoka.
Á sumum voru enn verðmiðar sem þurfti að klippa af - þannig að mamman var algerlega niðursokkin í þessa vinnu. Þá kom Bjartur - sem var orðin þreyttur á að fá enga
athygli - með tuskudýr í kjaftinum og lét það í ruslapokann með verðmiðunum. Ég tók hann úr og lét hann elta hann - þannig að auðvitað kom hann með hann aftur í pokann. Þá henti ég honum lengra og það varð til þess að Bjartur fornemaðist og skildi að ekki væri hægt að leika á þessari stundu. Þannig tók hann tuskudýrið aftur í kjaftinn og hoppaði uppí stól með hann. Sleikti hann og var góður við hann og virti mig ekki viðlits þó ég kallaði til hans.
Ég tók þessa myndaseríu sem mér finnst lýsa þessu ansi vel:












Bjartur - skrýtin köttur !

Hann Bjartur okkar er einstakur köttur að okkar mati. Svei mér þá ég held að hann telji sig vera lítla barnið okkar. Hann hefur náttúrulega lítið umgangist sína líka og er mest inniköttur. Stundum vill hann þó strjúka út en fer þá vanalega ekki langt eins og t.d. um daginn þegar kominn var töluverður snjór þá skaust hann út - fram hjá okkur - eins og eldibrandur. En þegar hann fattaði að hann stóð næstum á kafi í snjónum kom hann á ekki minni ferð hlaupandi inn aftur. Tommi er samt ansi duglegur að hleypa honum út í garð - en þá auðvitað í ól og bandi. Við viljum sko ekki missa hann fyrir bíl eins og Fylkir í fyrra.

En nú að myndum dagsins, þegar við komum úr verslunarferðinni í dag og tekið var uppúr pokunum til að mynda fyrir bloggið þá var sko Bjartur ekki lengi að snara sér í sófann þefa af fötunum og leggjast á þau ! Hvað er málið ? Líklega hefur amma Dúdú rétt fyrir sér að kisan okkar á eftir að verða abbbbó !!!



Bjartur lét sem hann heyrði ekki í mér !


Ha hvað ? Varstu að kalla á mig ?

Issss ! Læt nú ekki raska ró minni hérna í sólargeislanum

Harpa Hua Zi 9 mánaða í dag

Innilega til hamingju með að vera orðin 9 mánaða gömul Harpa okkar. Nú styttist líka í að við getum haldið uppá öll afmæli og áfanga í lífinu þínu með þér.

Við hugsuðum mikið til þín í dag og nutum þess að dunda okkur, pabbinn og Kiki fóru í ítölsku kennsluna í morgun og eftir það var skundað í Nexus þar sem Kristófer fór í Warhammer leiki.
Við, mamman og pabbinn fórum hins vegar í verslunarleiðangur þangað sem mamman hafði farið með ömmunni fyrir viku síðan. Þetta er svo ótrúlegt outlet - stórkostlega gaman að kaupa nokkur stykki af barnafötum með góðri samvisku. Já það er ekkert mál þegar flíkur kosta einungis 250 eða 500 kr. og það sem best er að það eru góð gæði í þeim, þykk og góð bómull. Hérna fyrir neðan eru myndir af afrakstrinum - bara flott er það ekki fyrir 9 mánaða afmælisgjöf ? Jeppp það er ekki vandamálið að finna sér gott tilefni til að versla fyrir hana Hörpu Hua Zi.

Svo slæddist líka smotterí með fyrir foreldrana:
Mamman fann þessi grúví höfuðföt - fara henni bara nokkuð vel.
Pabbinn passaði fínt í skóna sem mamman hafði séð síðast en hélt að væru of stórir.
Oh soooo soft !

Litir sem eflaust fara Hörpu Hua Zi vel


Vélsaumað mynstur - gerir mikinn svip



Vá hvað mömmunni fannst þetta grúvi bolur



Maður verður ekkert smá pæja !




Létt og góð samfella sem á eftir að koma sér vel í Kína





Mamman mátaði samfelluna líka með öðrum bol





Svei mér þá ! Er þetta ekki Kína stjarna á sokkabuxunum ?




Fín hirsla (fást í Rúmfatalaegernum) un
dir dóteríið hennar Hörpu Hua Zi







Græn loðin derhúfa handa mömmunni




Hvítt loðið skyggni handa mömmunni





Pabbinn fékk þessa fínu skó til að spóka sig á í Kína

Fermingarkort Kristófers


Síðustu daga hafa mamman Kristófer og Bjartur verið á fullu að búa til fermingarboðskortin hans Kiki. Það má ekki seinna vænna því drengurinn á að fermast 24. mars á annan í páskum kl. 11 í Langholtskirkju.
Síðan verður boðið í veislu uppí Munaðarnesi - Kaffi Paradís hjá Ástu Hrönn vinkonu okkar.
Vonandi geta allir mætt okkur hlakkar mikið til og Kristófer sagði um daginn að það eina sem hann vildi að fólk mundi muna eftir væri að maturinn hefði verið góður og það hefði skemmt sér vel.
Við fjölskyldan og vinir ætlum að gera okkar besta til að standa undir þeim væntingum.


Bjartur taldi best að staðsetja sig á tölvunni og fylgjast þaðan með prentuninni


Kiki ábyrgðarfullur að skera niður myndirnar

Þátttakendur