Gestabók Kínastelpunnar
miðvikudagur, 27. febrúar 2008
Ábending um bann við birtingar trúnaðaupplýsinga á Kínastelpuvefsíðunni
Mér hefur verið bent á xxxxx xx xxxxxxx xxxx xxxxx xxxxx séu xxxx á bloggsíðu litlu Kínastelpunnar. Xxxxxxx xxxxx xxx xxx. Xxxxxx xxxx xxxx xxxbirting á tölvupóstunum er ekki heimil, hvorki á læstri síðu né opinni. xxx xxx xxx x xxxx.
Vegna þessa hafa "allar" viðkvæmar persónlegar trúnaðarupplýsingar á síðunni verið yfirskrifaðar með Xx.
Línurnar sem okkur yfir sást eru eftirfarandi: "Tölvupóstur þessi ásamt viðhengi getur innihaldið trúnaðarupplýsingar og er eingöngu ætlaður þeim sem hann er stílaður á. Óheimil meðferð tölupósts þessa og viðhengja hans getur varðað skaðabóta- og refsiábyrgð samkvæmt lögum um fjarskipti. Efni tölvupóstsins og viðhengja er á ábyrgð sendanda xxxx xxxxx xxxxxx, xx xxxxx.
Ástæðan fyrir því er ósköp einfaldlega sú að spenningurinn yfir því að fá fréttir af gangi mála varðandi litlu dóttur okkar, verður smáaletursathyglinni yfirsterkari.
Okkur hjónunum þykir miður að hafa ekki áttað okkur á þessu, og munum virða ábendinguna í framhaldinu.
Kveðja,
Tómas
Íslenskan er komin í lag, eins og þið sjáið
汪洋致信全省政法会议:争当全国政法工作排头兵
汪洋会见柬埔寨客人 双边进出口总值三年连增30%
宋海强调 树立世界眼光围绕推进科学发展解放思想
广东民营经济增加值达13216亿 继续保持全国领先
[统计数据]2007年广东国民经济和社会发展统计公报
港珠澳大桥融资安排商定 已列入广东今年重点工作
粤打击盗窃电信设施专项斗争见成效 损失降44.5%
2008广东省海峡两岸交流促进会会员大会在穗举行
广东遭遇最严重缺电局面 3月份缺口达1200万千瓦
节后广铁客流大幅回落 第二波高峰已经顺利度过
广东加快进行受损公路恢复工作 力争年底前完成 í bloggið.
Svo bara að vona að við náum út fyrir Kínverska Net-varnarmúrinn
þriðjudagur, 26. febrúar 2008
Raunir framhaldsskólakennarans sem þarf afleysingakennslu

Ég er að glíma við að fá upplýsingar frá heilu heimsveldi, Kínverska alþýðulýðveldinu, og þar verður ekkert öruggt fyrr en alveg á síðustu stundu.
Við fengum í dag skeyti þaðan, en þar segir m.a.:
Xxxxxxxx, xxxxxxxxxxxx xxxxx xxxx. Xxxxxx, xxxxx. Xxxxxxxxxx, xxxxxxx.
Xxxxxxxxxxxxxxxxxxx. Xxxxxx. Xxxxxxxxxxxxxx. Xxxxxxxx, xxxxxxx.
Þarna er talað um þessa risastóru kaupstefnu Trade Fairs, sem verður haldin akkúrat í þessari einu borg, sem við eigum líka að vera í, Guangzhou, í apríl. Það að við getum ekki verið þar á sama er að það verður allt á öðrum endanum, engin hótel, allt verð uppsprengt, extra langar biðraðir alls staðar og sv. frv.
Við ætlum að stinga upp á að fá að vera í annari borg, en við erum ekki að díla við Kaupfélag Héraðsbúa, heldur Kínverska alþýðulýðveldið, þannig að ég er ekki allt of bjartsýnn á að það gangi.
Eins og þið sjáið þá stendur í textanum: the time seems too tight, svo að þetta virðist alveg eins geta orðið raunin og er jafnvel líklegra. Ef svo fer er ferðatíminn okkar í maí, en ekki í apríl.
Það er leiðinlegt að vera að óska eftir afleysingakennslu, sem síðan er ekki þörf fyrir, en svona lítur málið út núna, og ég læt ykkur vita um leið og nýjar fréttir berast.
Kveðja,
Tómas
Ferðafundur
Sæl öll.
Xxxxxxxxx verður Xxxxxx, við reynum að hafa fundinn um hádegisbilið svo Tómas og Hrönn geti mætt, xx.xx væri þá heppilegast. Xxxx xxxxx taka oft langan tíma, því fólki finnst svo gaman að spjalla að það gleymir sér. En við ljúkum því mikilvægasta á u.þ.b. X tímum. Það er vonandi líka kostur við að hafa xxxxxx xxxxxx dags að þá nær xxxxxxxx vonandi auðveldlega xxxx sama dag.
Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx.Xxxxxxxxxxxxxxxxxxx
xxxxxxxxxx.Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx.Xxxx
xxxxx.Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx,xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx.Xxx
xxxxxxxxxxxxxxxxxx.Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Xxxxxxxx
Jahá ! Það er nefnilega það ! Nú er risiko að við komumst ekki í byrjun apríl. Sem þýðir að við getum ekki farið fyrr en eftir "trade fair" sem mundi vera í lok apríl samkvæmt þessum upplýsingum:
Date:
Phase 1: Apr. 15th-20th, 2008
Phase 2: Apr. 25th-30th, 2008Fair
Interval: Apr. 21st-24th, 2008
Venue:
China Import and Export Fair (Pazhou) ComplexChina Import and Export Fair (Liuhua) Complex
Categories:
International Pavilion,Industrial Products and Medicines & Health Care, Textiles & Garments, Consumer Goods, Gifts
Hér er slóðin á heimasíðu "trade fair":
http://www.cantonfair.org.cn/en/index.asp
Það virðist semsagt vera bara tvennt í stöðunni að við verðum heppinn og náum fyrir sýninguna sem byrjar 15 apríl eða við verðum einfaldlega að bíða þar til í maí. Oftast er það þannig að flogið er niðrí hérað á sunnudegi sem væri þá 4. maí og börnin eru afhent á mánudegi þ.e. 5. maí.
Nú þýðir ekkert annað en að hjálpast að og biðja og krossa putta til þess að komast út í byrjun apríl.
Við verðum að ná því - Harpa Hua Zi er nefnilega að bíða eftir okkur !!!!
Kvitt kvitt
Hlökkum til að heyra/lesa frá ykkur
Ma Ma og Ba Ba Hörpu Hua Zi
mánudagur, 25. febrúar 2008
Samvinna í hóp 17
http://www.mapmatrix.com/asia/02101.pdf
Datt í hug að deila með ykkur slóð af góðu korti af Beijing sem ég fann. Þaðopnast inn í Acrobat og þar er hægt að stækka það og skoða vel. Búið er aðmerkja búðir og veitingarstaði. Þarna er líka kort af Sumarhöllinn og Forboðnu borginni. Gaman að skoða og átta sigaðeins á því hvernig staðsetninginn er.
http://www.fwcc.org/girls_height_low.htm
Hér er hægt að finna út hvar barnið okkar er í vaxtakúrfum miðað við Kínversk börn.
Hér er svo ein góð um verslun í Beijing.http://www.tour-beijing.com/shopping/index.php#4
http://www.aettleiding.is/
Að ógleymdri þessar, hún er alveg frábær :-) þarna er að finna góðar upplýsingar um ferðina og hvað er gott að taka með. Mæli með að þið lesið síðurnar um ferðalagið og að fá barni í hendur og allt það undir "Að ættleiða" og þar undir "Undirbúningurinn", "Ferðin" og "Heimkoman" ásamt náttúrulega allt annað efni á síðunni.
Vona að undirbúningur gangi vel hjá ykkur öllum, okkur hjónum finnst tímin íraun æða áfram og nóg að gera þannig, en tökum lífinum með ró og reynum aðofgera okkur ekki í undirbúninginum.
Læt þetta duga í bili vona að þetta komið að góðum notum fyrir einhverja.
Með kveðju
Ingibjörg Anna
Frábærar systur og bróðir
18.2.2008
..........................................En fréttir vikunnar eru þær að pabbi minn og Hrönn voru að ættleiða eina litla kínverska prinsessu, ég má ekki setja inn mynd af henni á netið strax af því að þau eru ekki farinn út að sækja hana, en það gerist bara fljótlega, ji svo skemmtilegt Ég að verða stóra systir 25 ára, það eru ekki allir sem eru svona heppnir ......................................
Later people
Svo komu fallegar kveðjur þar sem mamman fór bara að hágráta yfir öllu saman:
Eva Björg skrifaði:
til hamingju stóra systir :-)
nnugni skrifaði:
omg...lítil kínversk...ekkert smá gaman að lesa þetta :) hlakka til að sjá mynd af henni...hvenær sækja þau hana?
19.2.2008 kl. 0:01
Þórunn Katla skrifaði:
Takk fyrir það stelpur :) Þau sækja hana líklega í byrjun apríl.
19.2.2008 kl. 6:55
Sirrý skrifaði:
vá, draumurinn að fá litla prinsessu frá kína. Æðislegar fréttir! Til hamingju þórunn :)
19.2.2008 kl. 8:39
Ólöf skrifaði:
Til hamingju stóra systir :) 19.2.2008 kl. 20:59
Bára Inga skrifaði:
TIl HAMINGJU stóra systir:o) maður er aldrei of gamall skal ég segja þér til þess.... 19.2.2008 kl. 21:50
Svona samskipti og viðhorf eru bara til fyrirmyndar og ég er þakklát og stolt að unga fólkið okkar er svona opið og víðsýnt. Það er meira en margir aðrir þó að það sé ekki nema á aldur við mig !!! Sem betur fer er þetta fólkið sem erfir landið okkar.
Nú svo er það annað sem gæti verið svoooo praktískt en það væri ef Þórunn og Jón Ragnar myndu nú kannski einhverntímann eignast litla stelpu þá gætum við látið hana fá alveg fullt af fötum af Hörpu Hua Zi.
Næst stærsta systirinn Alda Karen á líka eftir að verða hissa - held hún skynji meira en aðra grunar. Það var oft sem hún talaði um litla Mulan barnið. Fyrir þá sem þekkja ekki teiknimynda menninguna þá, var Mulan kínversk stelpa sem reyndar þóttist vera strákur. Held að Alda hafi fílað það !
Yngsta systirinn hún Guðný er snillingur í fótbolta - hún á sko örugglega eftir að nenna að sparka bolta með Hörpu Hua Zi. Hún hefur líka verið að blogga um systir sína og þetta eru komment á það:
Feb 22 2008 3:28 PM okei ;d hei ég panta að vera fyrst að sjá hana ! (aa) sæt eins og stóra systir ;*elska þig ;3
valarún<3>
Feb 22 2008 3:22 PM ;otil hamingju elskan mín <3er href="http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=227583563">valarún<3>
Feb 22 2008 1:38 PM ;ooooohvaða fréttir ;dvalarún<3 href="http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendid=210531688">sóley jájá :)
Feb 22 2008 7:09 AM ææææææææj ! dúlla ;D hahertekki glöð? ;d
Nú svo er Kristófer stóri bróðirinn sem á eftir að finna fyrir mestu breytingunum og líklega kvíðir eitthvað fyrir öllu þessu eins og málin standa í dag. Hann er þó einstaklega mikil barnagæla og á eflaust eftir að knúsa Hörpu Hua Zi alveg í kaf ef það er eitthvað í líkingu við það hvernig hann er við Bjart kisulóru. Kristófer er ekkert að blogga en hefur farið stoltur með mynd af systur sinni í skólann til að sýna krökkunum.
Mömmunni finnst allt tengjast núna í örlagaþráðs vefnum t.d. var Kristófer alltaf kallaður Cinesino (litli kínverjinn á ítölsku) þegar hann var á aldur við Hörpu. Ef eitthvað er, gæti hann hafa verið meiri kínverji en Harpa Hua Zi ef dæmt væri eftir útlitinu á þeim tíma.
Kristófer finnst Harpa hinsvegar líkjast pabba hans - um leið og hann sá passamyndina hennar fór hann niður og náði í passamynd af Marcello og stillti þeim upp saman í ramma.
Ja hérna hér ! En hvort sem Harpa Hua Zi líkist Kristófer eða ekki þá trúum við pabbinn, því að Marcello hljóti að hafa komist í pöntunarlistann hjá Guði eða togað einhverja strengi til að hafa áhrif á að við fengjum þessa yndislegu stúlku. Hún er einfaldlega "2 perrrrfect" til að við séum "afþví bara" svona heppinn. Hann var líka sá sem sýndi einna mest áhuga á að við fengjum barn. Fyrst ætlaði hann að senda okkur til Parísar í glasafrjóvgun - þekkti einhvern þar. Svo bauðst hann til að fara sjálfur til Brasilíu og ná í barn fyrir okkur. Já hann var alveg ótrúlegur maður. Nú er einungis vika þangað til að það verður eitt ár síðan að hann lést á hörmulegan hátt. Mikið líður tíminn hratt ! Sr. Jón Helgi kom heim til okkar í dag og gaf sér góðan tíma til að ræða við Kristófer - held það hafi gert honum mjög gott.Hann mun koma aftur - það er ómetanlegt fyrir Kiki að ræða við einhvern utan fjölskyldunar.
Mest krúttaðasti sundbolur í heiminum
Föt keypt í Portúgal 2004
Verslað í Góða hirðinum fyrir 1000 kr.
Þetta finnst henni æði !
Flottur barnastóll á reiðhjól - svartur í stíl við hjólið mitt
Fataskápur Hörpu Hua Zi endurskoðaður
Tinna mömmusystir kíkti rétt við á leiðinni útá flugvöll. Þau eru nú búin að vera í 1 viku á Íslandi. Hún sagðist vita um fínan matarstól fyrir Hörpu Hua Zi og svo ætlaði hún að biðja tengdamömmu sína að leita að litlu fötunum hans Brimars. Kannski við getum notað eitthvað af þeim ?
Svo fór pabbinn í kínanuddið í Kópavoginum en á meðan fórum við Kiki á msn og ræddum við Söru og co í fyrsta sinn í gegnum tölvuna.
Eftir það var mamman alveg rosalega dugleg að fara í gegnum öll fötin sem hefur verið safnað, lánað, saumað eða keypt á stelpuna okkar. Þarsem það var aldrei öruggt hversu gömul hún yrði þegar hún kæmi þá hefur safnast saman stærðir frá 80 til 3.-4. ára.
Þetta er semsagt mest allt mikið stærra en hún hefur not fyrir strax. Vá heljarinnar vinna að kíkja á allar stærðir og flokka niður.
Staðan í ferðaundirbúningi til Kína
Sælir ferðafélagar,
Til hamingju með nöfnin þið sem eruð komin með þau.
Við erum ekki búin að fullvinna okkar. Það ríkir mikið jafnræði hjá okkur hjónum þ.e. ég fékk að ráða síðast og nú fær Bjarni að ráða. Ég geri ráð fyrir mjög íslensku og sterku nafni á litlu Qing okkar J
En að öðru, ég var að tala við Guðrúnu um hótelin og stöðuna. Ég kom því á framfæri hvaða hótel við viljum. Hún hafði ýmslegt að segja m.a. að einn hópur eða tveir voru ekki ánægðir með Grand vengna þess að einhverjir fengu reikning sem þeir áttu ekki og lentu í veseni með það. Svo er hótelið þannig að það eru tvær byggingar, önnur ný (sú sem við vorum í og vorum ánægð með) og svo eldri og verri bygging. Einhver hópur lenti í því að vera í nýju byggingunni áður en börnin komu en fengu svo gömlu bygginguna þegar þeir komu aftur með börnin. Ég bað hana um að kanna þetta og ítreka að við viljum absolut fá nýju bygginguna í bæði skiptin. Hún sagði að það væri kannski ekki í þeirra höndum. En ætlar að kanna málið. Ég sagði henni að það væri vel inní myndinni að fara þá á Crown Plaza og hún sagðist ekki vita hvort það væri enn í boði. En alla vega okkar óskir eru komnar á framfæri. Svo ítrekaði ég vilja okkar með White Swan og hún sagðist myndi reyna það en hugsanlega væri það dýrt á þessum tíma en ætlar líka að kanna það. Það eru víst fleiri góð hótel þar sem koma til greina.
Sending frá ættleiðingunni með okkar pappírum fór með DHL á miðvikudaginn og ætti að vera komin til Kína á mánudaginn. Það þýðir að næsta skref er fyrir þá að útbúa ferðaleyfi okkar. Það hefur tekið frá 3 vikum upp í 7. Í okkar tilviki skiptir öllu að þau verði afgreidd sem fyrst svo við komumst út fyrir trade fair. Ef þau nást ekki fyrir trade fair fáum við ekki að fara út fyrr en eftir það og það þýðir í lok apríl. Ég ítrekaði við hana að það sé bara ekki inn í myndinni að fara svo seint og bað hana að gera allt sem í hennar valdi er til að ýta á það. Við höfum beðið nógu lengi. Hún lofar að senda pósta og ýta eins og hægt er á það.
Hún áætlar að panta flug 1. apríl, sem er mánudagur, og þá erum við komin út 2. apríl. Það er ekki möguleiki að einhverjir fara á undan hópnum segir hún. Vaninn er að hóparnir fara út í hérað á sunnudegi og fá afhend börnin á sunnudeginum. En hana minnir að í Guangdong séu börnin afhend á mánudeginum. Það þýðir að við höfum frá þriðjudegi til sunnudags í Beijing.
Ég spurði hana um þann möguleika að fara fyrr ef ferðaleyfin koma fyrr og þá sagði hún að það væri e-ð sem við þurfum að hafa í huga. Breytingar á flugmiða kosta alltaf eitthvað og svo er spurning um sæti osvfrv. En við hljótum að vera sammála um það að fara fyrr ef sá möguleiki verður fyrir hendi. Er það ekki?
Ferðalag okkar mun taka 15 daga,flogið heim á þriðjudegi sem þýðir komin heim á miðvikudegi.
Við munum hins vegar fá að sjá ferðaplanið áður en ferðaleyfin koma og þá kemur í ljós hvað þeir ætla okkur að skoða. Það er auðvita hægt að gera athugasemdir við það þegar þar að kemur.
Ég bað hana líka að kanna verð á 1. class miðum fyrir heimleiðina þar sem ég hef mjög slæma reyslu af heimferð á venjulegu farrými. Vil ekki hræða neinn en ég var verulega veik á heimleiðinni og man það vel að ég hugsaði þá að ef ég færi aftur þá myndi ég ferðast með fyrsta farrými á heimleiðinni. Það er bara e-ð sem hver og einn verður að ákveða fyrir sig. En þetta þarf allt að hafa í huga kæru ferðafélagar.
Þetta var nú það sem við ræddum í “stuttu” máli.
Með kveðju
Ingibjörg Anna
Svo sendi ÍÆ okkur bréf um ferðafund:
Sæl öll.
Sú sem ég hafði augastað á að fá á xxxxxxx er upptekin x xxxx, en getur komið á fund xxxxxxxx x ef það hentar ykkur og þá sérstaklega xxxxxxxxx. Sendið mér nú línu um hvernig ykkur líst á það. (biluð tölva tafði okkur, ég hef verið að bíða eftir svarpósti frá henni)
B kv og góða helgiXxxxxx
ÚPS ! þetta er ákkúrat dagurinn sem Guðný á að blessast, vonandi verður hægt að breyta þessu.
RQ hefur einnig verið að gefa upplýsingar um að fyrstu TA (travel approval) séu að detta inn:
TA Rumor
One agency reports that TA’s for their clients (for the recent NSN batch) are in the air.
As a reminder, all TA’s do not come at once. The CCAA mails them out as they are ready, and the timing depends on how quickly the agency got them back to the CCAA, and how quickly the SWI responded to the CCAA that the babies are still healthy and available for adoption.
Mamman hefur fylgst með fólkinu útí heimi sem fékk upplýsingar á sama tíma og við. Það eru sumir búnir að búa til ferðaplan eins og þessi:
Well, Katelyn turned 8 months old on Sunday and we are ready to bring her home. We had a two and a half hour travel meeting last night with our agency. We got to meet three of the other families that are traveling with us and the other seven families called in from around the country via teleconference. We basically went over everything from filling out our visa applications to itinerary, to money...and everything in between.So our tentative schedule is:
Depart Lexington - April 10th
Arrive in Beijing - April 11th (12 hours ahead and 20 hours of traveling later)
Sightseeing in Beijing April 12th and 13th
Depart Beijing for Nanchang, Jiangxi - April 13th (late afternoon/early evening)
Stay in Jiangxi -April 13-20
Receive Katelyn - April 13 when we get to Nanchang or the next morning on April 14th
Adoption finalized (on China's end) the day after we receive Katelyn
Depart for Guangzhou - April 20th
US Consulate Appointment - April 22nd
Oath Ceremony (where we promise to take care of Katelyn) - April 23rd
Depart for the USA - April 24th (arrive the same day because we gain 12 hours!)-Katelyn is a US citizen as soon as we land in the US!
We will not have all of these dates officially until a couple of weeks before we travel, but these look fairly solid, give or take a day. Josh will be off work from April 9-May 1, so we'll have a week together once we get home to get over the jet lag and begin to transition on this end.
I feel like there's a whole lot to do in the next seven weeks! I'm making lots of lists right now. We worked on the nursery this weekend and it's looking very cute. The furniture is assembled and now I'm decorating. I'll post pictures when I get done!
Þetta er slóðin þeirra: http://www.theblendedmcds.blogspot.com/
laugardagur, 23. febrúar 2008
Kínverska vögguvísan Mama Hao
http://www.youtube.com/watch?v=09kOSj0FmqE
Hér eru aðrar útgáfur af söngnum á YouTube:
http://www.youtube.com/watch?v=wKoUjWG15Y4
http://www.youtube.com/watch?v=IvHwN9MtBng
Hér er textinn á kínversku og enska þýðingin:
Mama Hao (Mandarin)
Shi shang zhi you mama haoYou ma de hai zi xiang ge bao.
Tou jin mama de huai baoXin fu xiang bu liao.
Shi shang zhi you mama haoMei ma de hai zi xiang ge caoLi kai mama de huai baoXin fu na li zhao.
English translation:
Only Mama is the best in all the worldWith a mama, you have the most valued treasure.
Jump into mama’s heart andYou have endless happiness.
Only Mama is the best in all the worldWithout a mama you are like a piece of grass,
Away from mama's heart,Where will you find happiness?
Yndislegur texti - ég ætla einnig að standa mig í að vera besta mamman í heiminum sem Harpa Hua Zi getur fengið. Hún verður allavegana besta dóttir í heiminum sem ég get fengið. Hvers er hægt að óska sér frekar en að eiga stórkostlega vel gerðan og góðan son og síðan fá að njóta lítillar stúlku sem ég þekki ekki enn. Mér finnst nú samt að ég hafi alltaf þekkt hana í hjarta mínu.
Hef útbúið myndir af börnunum mínum í nisti sem ég hef um hálsinn. Enn er ég ekki alveg búin að átta mig á því að ég get sagt börnin mín ! Þetta er stórkostleg tilfinning - ég er svo hamingjusöm.
Talandi um verslunarferðir !
Haldiði að við pabbinn gætum fundið eitthvað þar ?
GET IT LOUDER!Creative LifeMore InformationGuangzhou: Grandview Mall#228 Tianhe Street, Guangzhou2007.6.23-7.8Located in Guangzhou's dynamic Tianhe commercial district with 57,000 square meters in site area and 420,000 square meters in total area, Grandview Mall includes Asia's largest modern shopping center: a 7-storey building that measures over 300,000 square meters with a flow of 200,000 people per weekday, 400,000 people per weekend day, and over 1,000,000 people per day during the golden week holiday.
Verslunarferð ömmunar og mömmunar
Amman og mamman fóru í frábært outlet sem Jónína úr IR hafði sagt mömmunni frá í vikunni. Þar var sko heldur betur hægt að gera góð kaup á flottum fatnaði (í réttri stærð) á skottuna hana Hörpu Hua Zi. Rétt á undan okkur smeygðu þau Jakob Frímann Magnússon og frú sér inn og ætluðu greinilega líka að gera góð kaup. Við ætluðum ekki að stoppa lengi en tíminn leið hratt og áður er varði stóð mjög þolinmóð afgreiðslukona yfir okkur (1/2 tíma eftir lokun) og benti okkur góðlátlega á að það væri búið að loka. Þá sagði mamman að hún væri að finna litlar stærðir á kínastelpuna sína sem væri að koma bráðum og miklu yngri en allir höfðu þorað að vona. Þá varð konan enn almennilegri og benti okkur á fullt af fötum í stærð 74 sem verður liklega alveg passlegt þegar við naúm í hana Hörpu í apríl. 'Otrúlegt að hægt sé að selja föt frá 100 kr. og nærboli á 150 kr. Aðrar flíkur kostuðu bara nokkra hundrað kalla, við vorum alveg hissa á að hægt væri að bjóða gæðaflíkur á þessu verði - hugsið ykkur álagninguna almennt í verslunum !!! Amman var grand á því og keypti fullt af fötum m.a. útikápu í plómulit, gallajakka með gallapilsi, appelsínulitar buxur í stíl við pabbann og fullt af öðrum flottum fötum. Mamman á eftir að taka myndir og setja inn til að sýna hvað þetta er flott. Það verður ekki hlaupið í það því við löbbuðum út með hvorki meira en minna en 4 poka. Yndislega afgreiðslukonan fylgdi okkur út að dyrum og óskaði okkur alls hins besta og góðrar ferðar til Kína.
Næst fórum við í dótabúðina just4kids svona bara til að forvitnast. Við vorum nú ekkert rosa hrifnar af dótinu - þó að væri af nógu að taka. Sáum þó nokkrar krúttilegar tuskubrúður, flottan bílstól og púsluleikmottur með stafrófinu sem væri alveg ágætt að eiga !!! Vantar einhvern gjafahugmyndir handa Hörpu Hua Zi ???? Mamman fór þó ekki tómhent út - það var rosa sæt snuddufesting sem varð að koma með heim. Á þessum tímapunkti var amman orðin alveg rosasvöng þannig að við skelltum okkur yfir í IKEA - búmmluðum og borðuðum í dágóðan tíma. Mamman fann flott græn kerti á 30 kr. sem á að skreyta með í fermingarveislunni hans Kristófers 24. mars. Vorum einnig til lokunar í þessari búð ! Við sem ætluðum ekki að vera lengi. Fórum svo heim á flottu Panda bifreiðinni hennar mömmu og sýndum Kiki og pabbanum með stolti það sem var fest kaup á í dag. Þeir voru alveg baff yfir þessum frábæru kaupum. Vááá kannast einhver við svona rúss eftir vel heppnaða shopping ferð ??? Það verður aldeilis frábært að sjá snúlluna í þessum fínu fötum - getum bara ekki beðið !
Þetta er það sem mamman keypti á Hörpu Hua Zi.