Gestabók Kínastelpunnar
föstudagur, 22. febrúar 2008
Fyrsta bloggid a nyju ferdatolvunni
Pabbi er i vandraedum med takkana og sina storu fingur, thvi tolvan er mjog litil og hentar thvi vel, i ferdalagid langa. Mer synist pabbi lika eitthvad thurfa ad athuga islenska lyklabordid. En tolvan virkar vel og mun vonandi standa undir blogg-alaginu i Kina.
1000 innlit/flettingar fyrir mánudaginn ???
Við, ég, mamma og pabbi eru í skýjunum með viðtökurnar við síðunni okkar og tæplega 900 innlit og flettingar eru komin, og við stefnum á 1000 innlit um helgina, svo endilega verið dugleg að kíkja og fletta. 7 dagar og 900 flettingar þýðir það að við getum verið viss um að verið er að fylgjast með þróun mála hjá litlu fjölskyldunni í Snekkjuvogi og fyrir þetta erum við einstaklega þakklát. Pabbi er að fara hringja í afa Grétar í kvöld og látga hann vita um Hörpunafnið, því gamli er víst ekki sleipur á Netinu.
Um helgina á að pússa barnarúmið mitt ...
Um helgina á að pússa barnarúmið mitt og lakka og gera það þannig endanlega fínt þannig að ég komi til með að sofa vel í fallega herberginu mínu. Ég fæ síðan lánað ferðarúmið hans Kristófers bróður til þess að sofa í í Hrísey, seinna í sumar.
Allir meira og minna vita um nafnið
Núna eru margir búnir að kíkja á síðuna til þess að vita nafnið á mér. Pabbi sendi SMS til Danmerkur snemma í morgun til Þórunnar systur, Tinna frænka kemur í heimsókn á eftir og þannig berst fiskisagan (reyndar hrogn) áður en ég veit af.
fimmtudagur, 21. febrúar 2008
Nafnaveislan
Skírnarvottarnir, frænkur mínar Astrid og Auður, ömmur mínar báðar og systkini mín Guðný og Kristófer voru viðstödd "afhjúpun" nýja nafnsins. Pabbi hafði prentað nýja nafnið mitt á 5 blöð, einn staf, H A R P A, á hvert og hinu megin, H U A Z I, og sneri það nafn upp þegar gestirnir komu. Síðan sneru hver og einn einu blaði við og nýja nafnið tók að birtast. Farið var eftir aldri og Kristófer sneri fremsta blaðinu við, H _ _ _ _. Guðný sneri við 4ða blaðinu, H _ _ P _, og þá sögðust einhverjir vera búnir að ná því hvert nafnið væri. Síðan sneri Astrid frænka 3ja blaðinu við, H _ R P _ og A-in tvö komu svo frá Auði frænku og ömmu Fríði. Allir voru mjög ánægðir með nafnið mitt

Kristófer búin að snúa við Háinu ........ fremsta stafnum
Astrid snéri við Ainu (hennar staf) í miðjunni og spennan magnast !
Allir mjög ánægðir og segja að það hæfi vel þessari stúlku.
Þetta var yndisleg kvöldstund með fólki sem er okkur dýrmætt og sem á eftir að hafa mikið með Hörpu Hua Zi að gera í framtíðinni.
Amma Fríður kom með þessa fallegu peysu í tilefni nýja nafnsins.
Þetta er peysa sem Hanna eða Matta í Hrísey hafa líklega prjónað og verið að selja í Perlunni (handverkshúsinu). Amman keypti hana afþví að henni fannst hún svo sæt - en grunaði alls ekki að Harpa Hua Zi gæti passað í hana. Haldiði að maður verði fín ?
Undirbúningur mömmunar hófst þegar hún keypti pappír og skraut í "mont" albúm sem allir viðstaddir áttu að fá í nafnaveislunni.
Eftir vinnu var byrjað að föndra með diggri hjálp Kristófers svo bættist Guðný í hópinn og þannig gátum við klárað 6 "mont" albúm fyrir kvöldið.
Svo eftir að nafnið var ljóst og búið að fá sér piparmyntu og bananaís auk hind, blá og jarðaberja þá fóru stóru systkinin aftur niður í vinnuherbergi mömmunar og héldu áfram að skreyta albúmin sín. Það var heilmikil stemning hjá þeim og það á víst að sýna krökkunum í skólanum á morgun. Spennó hvað verður sagt !
Mamman var líka búin að fara inná ungi.is og kanna hversu algeng nöfn allra viðstaddra væri á Íslandi.
Hér eru þær upplýsingar efst það algengasta:
Guðný Skírnarnafn 1252 Millinafn 389
Auður 1048 126
Þórunn 1030 207
Tómas 734 147
HARPA 665 236 (verða nú bráðum 666)
Kristófer 483 75
Hrönn 366 749
Fríður 36 19
Astrid 26 8
Svo var annað sem mamman fann út en það er til stjörnumerki á himnum sem heitir Harpa. Svona lítur það út:

Elsku Harpa Hua Zi við getum ekki beðið eftir að fá þig heim í fjölskyldufaðminn.
NAFNIÐ á stúlkunni er komið
Jæja þá eru pabbi og mamma loksins búin að opinbera íslenska nafnið mitt.
Fyrir framan kínverska nafnið mitt, Hua Zi, kemur íslenska nafnið HARPA.
Harpa Hua Zi Tómasdóttir heiti ég og er mjög sátt við það.
Fyrir framan kínverska nafnið mitt, Hua Zi, kemur íslenska nafnið HARPA.
Harpa Hua Zi Tómasdóttir heiti ég og er mjög sátt við það.
Systkini Hua Zi
Í lok veislunar bað mamman systkini Hörpu Hua Zi að stilla sér uppí myndatöku. Fyrst með mynd af litlu systur sem af augljóslegum ástæðum birtist ekki núna.
En svo voru teknar þónokkrar myndir sem heppnuðust misvel - Kiki oft með skrítinn svip.

Þessi mynd var sett til samanburðar þarna eru þau 10 ára í Hrísey.
Guðný sæta með Bjart sem verður nú eiginlega líka "systkini" amma Dúdú heldur að hann verði afbrýðissamur þegar Harpa Hua Zi kemur til okkar.
En hann er svo yndislegur köttur blíður og með gott lundarfar að það tekur hann ekki langan tíma að jafna sig.
En svo voru teknar þónokkrar myndir sem heppnuðust misvel - Kiki oft með skrítinn svip.
Þessi mynd var sett til samanburðar þarna eru þau 10 ára í Hrísey.
En hann er svo yndislegur köttur blíður og með gott lundarfar að það tekur hann ekki langan tíma að jafna sig.
Dót og föt fyrir Hua Zi
Mamman keypti naghring fyrir verðandi/komandi tennur, snuð og kubba til að stafla upp.
Svo dreif hún sig í Kringluna afþví að hún vissi að sum föt sem voru á útsölunni um daginn voru svo hrikalega sæt. Þegar við pabbi fórum fyrir nokkrum vikum og kíkja á útsölurnar þá hvarflaði ekki að okkur að kaupa þessi litlu/sætu föt.

miðvikudagur, 20. febrúar 2008
Pabbi græjar sig upp
Pabbi var í tölvubúð í dag, keypti pínutitla og frekar ódýra fartölvu í ferðalagið, lausan disk og skrifara, þannig á nú á ekkert að vera því til fyrirstöðu að mynda mig, barnaheimilið, fóstrurnar, Bejing, múrinn, Yangchun og allt hitt sem fyrir augu ber í Kína og vonandi að halda áfram að blogga á þessari síðu, ef samband næst út fyrir Netvarnir Kínverja, sem eru víst ansi tryggar.
Pabbi fór í nudd og ég er komin með tilboð um píanótíma
Kínverski nuddarinn í Hamraborg, var mjög hrifin þegar pabbi sýndi henni myndir af mér. Hún sagði að ég væri mjög fríð, og benti á kúpt ennið og kinnbeinin því til stuðnings. Pabbi gelymdi að spyrja hvað nafnið mitt Zi merkir, en ætlar að gera það á föstudaginn, í næsta nuddtíma. Hann lofaði líka að koma með mig á nuddstofuna þegar við komum heim, og það gæti borgað sig. Konan er nefnilega búin á bjóða okkur bæði kínverskukennslu og mér píanókennslu en 22ja ára dóttir hennar talar bæði kínversku og íslensku og kennir á píanó. Hver veit nema að ég slái til, þegar ég stækka aðeins meira og næ niður á píanópedalana.
Pabbi má ekki vera í of stuttum stuttbuxum í Kína.
Þegar pabbi og mamma fóru að fá upplýsingarnar um mig lentu þau á "kjaftatörn" í ÍÆ. Pabbi talaði um hitann í suður-Kína og sagðist bara ætla að taka með sér stuttbuxur og boli, auk sparifata. En þá var honum sagt að stuttbuxurnar mættu ekki vera of stuttar, helst ekki mikið upp fyrir miðja kálfa, en það finnst pabba varla vera neitt nema síðbuxur. En hann sættir sig við það og tekur einhverjar léttar hálfsíðar buxur, til að storka ekki reglum og hefðum Kínverska Alþýðulýðveldins.
Innlit í ÍÆ, með yfirlýsingu
Ég er stundum að blogga um löngu liðna atburði, en í lok jánúar fór ég á skrifstofu ÍÆ, með tryggðartryggingu okkar, þar sem við hjónin höfum undirritað loforð um að hafa ekki samband við ættleiðingaryfirvöld í Kína né barnaheimilið beint og margt fl. Ég átti gott spjall við Guðrúnu og Fanneyju, um margt sem viðkemur ættleiðingunni, ferðinni og þeim spennandi atburðum sem framundan eru.
Efnisorð:
ÍÆ - Íslensk ættleiðing
Gott að eiga góðan stað til að koma á þegar bíllinn bilar
Um miðjan janúar varð ég fyrir því óhappi að eldri fjölskyldubíllinn bilaði, það illa að Vaka varð allt í einu þjónustuaðili fyrir mig. Þetta gerðist framan við gamla Esso-húsið á Suðurlandsbrautinni og það var um 2ja tíma bið eftir kranabílnum. Þarna er ekki mjög mikið um áhugaverð vinaleg kaffihús, full langt í Múlakaffi og Hebbi söngvari búinn að loka ísbúðinni. Ég skreiddist því upp Síðumúlabrekkuna og hóf rölt austur eftir Ármúlanum. Veðrið hryssingslegt, slabb og frost. Við Ármúlann er ekkki mikið um spennandi útstillta verslanaglugga: eldhúsinnréttingar, rafvöruverslun, flísabúð, slökkvitækjaverslun og sendibílastöð. Ég var því feginn að komast inn hjá Guðrúnu og Fanneyju í ÍÆ, fá volgan drykk og uppbyggilegt spjall. Á þessum tíma var ekki farið að koma neitt stress í úthlutanir þannig að þetta var bara "cósy", spjall og aðeins verið að hugreysta, fræða og hvetja. Þegar ég síðan gekk til baka, án þess að virða fyrir mér útstillta reykskynjara né kafflistofu sendibílstjóranna hringdi Vöku-bílstjórinn og ég kom á nákvæmlega réttum tíma til þess að sjá til þess að færi nú ekki með annan bíl en minn gamla góða Renault.
Tjarnartorgin í Hafnarfirði og í Yangchun
Pabbi hefur líka haft nóg að gera, nú ætlar hann að reyna að skrifa eitthvað sjálfur.
Fjölskyldan mín fór í 30 ára afmæli ÍÆ. Þau vita hvar ég fannst, nefnilega á Tjarnartorgi í heimabæ mínum. Þegar þau fóru í Hafnarfjörð og óku síðasta torgið við Haukahúsið, sást að það er kyrfilega merkt: Tjarnartorg. Ef þetta er ekki eitthvað merki (sign) um eitthvað meira en við skiljum, þá er pabbi minn illa svikinn.
Að öðru leiti fannst þeim frábært að koma í afmælið og hitta alla ættleiðingakunningjana, Unnar Óskar hóp 10 og hóp 16, þau sem voru á námskeiðinu með þeim. Frábær dagur og mig hlakkar til að fara með þeim í 40 ára afmælið, og hitta allar hinar Kínastelpurnar. En pabbbi er búinn að segja að hann ætlar með mig á Tjarnartorg í Hafnarfirði og mynda mig við skiltið, alveg eins og á Tjarnartorginu í Yanchun í Kína.

þriðjudagur, 19. febrúar 2008
Guðmóðir Hua Zi
Í gær fékk pabbinn allt í einu nafn á Hua Zi í hausinn þegar hann var að sjóða hrognin. Nafn sem okkur líkaði strax mjög vel við. Það hæfir henni og hljómar vel saman við Hua Zi.
Við viljum því nefna hana opinberlega sem fyrst - það hæfa ekki gælunöfn á þessa stelpu. En við viljum að okkar nánasta fólk fái að vita það með formlegum hætti og það verður á fimmtudagskvöldið. Pabbinn ætlar að undirbúa allt - prenta út kínversk tákn og alla stafina. Við vildum líka að skírnarvottarnir yrðu með en áttum eftir að spyrja annan formlega ! Við vorum búin að biðja Auði frænku pabbans og vorum ekki viss hvort það gæti verið önnur kona - önnur guðmóðir ! Þannig að pabbinn hringdi í sr. Huldu Hrönn sem við erum búin að biðja um að skíra litlu skottuna og spurðum hvort það væri ekki í lagi að guðmæðurnar væru tvær. Það var sem betur fer hægt.
Þannig að mamman og pabbinn fóru til Astrid - frænku mömmunar til að spyrja hvort hún vildi vera guðmóðir/skírnarvottur fyrir Hua Zi.
Hún sagði JÁ og sagði að það væri henni heiður - mikið vorum við ánægð. Astrid hefur sýnt það nú í þessu ferli eins og oft áður hversu hún mikið hún stendur með okkur og samgleðst okkur. Það er alltaf hægt að stóla á hana. Hún var líka komin undir eins þegar hún vissi að við vorum búin að fá myndirnar af skottuni á föstudeginum.
Það verður sko spennandi að segja þeim íslenska nafnið hennar Hua Zi á fimmtudaginn.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)