Lilypie 1st Birthday Ticker

sunnudagur, 1. júní 2008

31.maí 2008 tveir mánuðir liðnir !

Það er ótrúlegt en satt að nú eru 2 mánuðir síðan ég fékk dóttur mína hana Hörpu Hua Zi í fangið í fyrsta sinn. Sú tilfinning var alveg ótrúlega mögnuð og ég fæ enn gæsahúð þegar ég hugsa til þess hvernig þetta var. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið þessa litlu stúlku og vera móðir hennar. Í Kína þurfti að skrifa uppá óhemjumarga pappíra um það að maður myndi aldrei yfirgefa hana eða koma illa fram við hana. Það mun ég svo sannarlega aldrei gera og ég mun alltaf vera til staðar fyrir hana.
Fyrsta snerting mín við Hörpu Hua Zi fyrir 2 mánuðum síðan.
Þeir mánuðir hafa liðið mjög hratt - eiginlega alltof hratt.
En verið alveg stórkostleg upplifun að kynnast þessari frábæru stelpu. Ég er svo heppin að vera mamma hennar og fengið að kynnast hvernig hún tekur framförum á hverjum einasta degi.

Hérna er Harpa Hua Zi skiljanlega ekkert sérstaklega ánægð. Hvernig gat það svosem verið ? Aldrei séð þessa manneskju fyrr !!


Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum dögum.
Stórglæsileg stelpa sem mamman elskar útaf lífinu.


Nývöknuð og alveg rossssalega sæt.




Engin ummæli:

Þátttakendur